BiRgItTa
Klukkan
28.09.2006 21:02:38 / bitta

nýtt-nýtt-nýtt

komin með nýja síðu..... http://www.nallub.blogspot.com
hrikaleg falleg síða skrifuð af alveg hrikalega fallegri mannsekju....

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 02:27:16 / bitta

ahhhh

    ég gefst upp...ómögulegt að sinna þessu með allan heiminn í hausnum á sér

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 17:53:23 / bitta

Sjálfsmorðssaga...

    Ragga sagði mér sögu um daginn sem að ég fékk einkaleyfi á að birta!

Þannig voru nú mál með vexti að Ragga var í sveitinni og í sveitinni var þessi gamla kusa sem hét Rist. Rist var orðin rosa gömul og var alveg að verða komin að því að bera. Svo einn daginn fara tvær stelpur sem voru þarna að sækja beljurnar til þess að fara með þær í fjós. Heyrðu...þær koma til baka með kálf í hjólbörum. Þá er Rist kellingin bara búin að bera og allt í góðu með það. Svo eru allir í fjósi og konan í sveitinni er þarna líka og spyr svo stelpurnar hvar Rist sé. Þær segja henni bara eins og er, Rist er inni í fjósi. Konan bara nei og sendir stelpurnar út að leita að henni. Svo eru Ragga og konan bara að mjólka og heyra svo stelpurnar koma öskrandi; ,,Rist er dauð!!!!!!" Ha?

Þær fara út og kíkja....þá stendur beljan bara við skurð, búin að setja hausinn út í og drekkja sér!!!!!! Bwahahahaha.....hló geðveikt mikið þegar Ragga sagði mér þetta! Þetta var sagan af beljunni Rist sem framdi sjálfsmorð....

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 04:27:35 / bitta

....

Menningarnótt 2006-------Frábær!!!!

Langur og strangur dagur sem stóð fullkomlega undir öllum væntingum, fyrir utan einstaka atriði sem klúðrust!

Dagurinn byrjar á því að ég vakna með systrum mínum sem ég var að passa ( Guðlaug & Sara ) með þennan líka dúndrandi hausverk....mæli eindregið gegn því að fólk sem lendir í þeirri bölvuðu aðstöðu að veikjast af þessari flensudruslu sem er að ganga fái sér smá hvítvín og kannski smá meira en smá.......

Mín plön fyrir daginn...fara með stelpurnar yfir í pössun rétt upp úr hádegi og kíkja í bæinn og skoða þetta áhugaverðasta sem er í boði. Auðvitað klikkaði þetta plan þar sem að ég gat ekki losað mig við þær strax ( tók mig til á meðan og skrifaði ógó skemmtilega bloggfærslu ).....semsagt : fjórum klukkutímum seinna get ég loksins lagt af stað í bæinn en hey...bíllinn verður bensínlaus!! COME ON! Ég get svo svarið það að einhverjum þarna úti er verulega illa við mig. En bensíleysið var ekki verra en svo að tefja mig um ca. tíu mín. Ok, ég legg af stað og stoppa aðeins hjá ömmu, sem verður til þess að Berglind ákveður að koma með mér heim til Ágústu. Við förum þangað og kemur svo ekki bara í ljós hvað þetta land er yndislega lítið...þær eiga sameiginlega vinkonu og búnar að heyra af hvor annarri ;) Svo ákvað ég að rölta aðeins niður í miðbæ, hitta Steinunni og Aelxöndru og reyna að hitta pabba líka. Hitti stelpurnar sem voru bara í gúddí fíling, fór svo á Victor og skutlaði bjór í Beggu og svo á Listasafn Íslands að hitta pabba. Fór svo að borða með honum á Shalimar....uhmm uhmm uhmm!! Nammmi nammi gott, ég elska indverskan mat :D Svo þegar við vorum búin að borða er klukkan orðin aðeins meira en ég gerði mér grein fyrir, Mezzaforte að spila og viti menn! Ég bara að labba þarna í sakleysi mínu...haldiði ekki bara að ég hafi feisað dauðann!! Ég get svo svarið það...mannþröngin þarna hefði sko gefið manneskju með félagsfóbíu og innilokunarkennd góða ástæðu til þess að hoppa niður af svölum...sjitt! Það sem sagt tók mig um það bil korter að troða mér í gegnum fimmtán metra og á meðan lenti ég í því að káfa utan á þessu allra heilagasta hjá svo að segja hverri einustu manneskju þarna, lenti þar af leiðandi í miklu káfi sjálf, mér var ýtt og hrint fram og til baka, var orðin aðframkomin af súrefnisleysi sem ég þakka smæð minni, missti andann svona sautján sinnum bara út af of náinni snertingu við alla svo loksins komst ég útúr þessari dauðasamkomu! Þá nánast hljóp ég frá Austurstræti og upp í Brautarholtið þar sem að hvítvínið beið mín! Þetta var mjög vel heppnað partý ( Takk fyrir mig Ágústa ) og sennilega það fjölþóðasta sem ég hef farið í hehe...sem gerði það reyndar að verkum að ég leiddist út í skemmtilegar umræður á ensku um mongólíta og hversu yndislegt þetta fólk er....framburðurinn á mongólíta var aldrei eins í þessi sjötíu skipti sem þetta orð var nefnt. Horfðum á flugeldasýninguna ofan af svölum og fengum svona smá sýnishorn..flottar milljónirnar ;) Ehmm...eftir það var fljótlega farið niður í miðbæ aftur og á Bar 11...ætlaði reyndar að kíkja á Prikið and work my ass off við Dr. Mister & Mr. Handsome og Hairdoctor....en nei..komst aldrei svo langt. Sló reyndar gaur í rassinn og greip í klofið á öðrum á leiðinni.....það vakti mikla kátínu meðal vinkvenna minna þar sem að þetta var víst ægilega fyndið...hver má dæma fyrir sig :P Svo á Ellefunni var góðvinur minn Dj. Gulli Ósóma að þeyta skífum...hann kann þetta kallinn ;) Það var að sjálfsögðu ógeðslega gaman þar..ógeðselga heitt og sveitt og ógeðslega mikið dansað :D Lúllaði svo á dýnu í stofunni hjá Ágústu og svaf bara mætavel.

Í dag kom svo Ragga heim úr sveitinni og hitti mig og Alex...gaman að fá dýrið heim :) Svo var ætlunin að kíkja á pabba og tékka á myndunum sem hann tók á Fjöskyldudeginum...Alex beilaði og fór í rúmið en Ragga kíkti með mér og við snakkede alveg heilmikið saman, sérstaklega um þessa sketcha sem á að taka upp,,segiði bara til stúlkur, kameran er komin, bara spurning um að hittast og drífa í þessu ;)

Svo er ég mikið búin að skoða heimasíðu AUS í dag...Ágústa alveg búin að gera mig veika núna mig langar svo að fara út...og Indland er valmöguleiki...I´m So Going!!!´

Heyrði reyndar í dag að Palli litli hafi verið laminn í bænum í gær...ekki nógu gott, fólk þarf að læra að hegða sér, þetta er alveg óþolandi. Sendi allavega hér með batakveðjur til Palla....

Þrátt fyrir allt saman verð ég nú bara að segja að ég skemmti mér stórkostlega og þakka bara öllum sem ég hitti í gær kærlega fyrir mig...yndislegt fólk í kringum mig:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 16:36:01 / bitta

........

Ég er núna mjög reið og pirruð...meira um það seinna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 02:51:27 / bitta

Menningarnótt!!!!!!

Jújú gott fólk, Menningarnótt á laugardaginn og ég get ekki beðið :)

Ætla að byrja dagin með því að vakna snemma...eða reyna það allavega! Kíkja á eitthvað sniðugt niðri í bæ...ætti að vera ýmislegt áhugavert í boði...ég get þó allavega lofað einu...ég mun ekki taka þátt í maraþoninu, ætla að gefa hinum sjéns á titlinuum líka ;)

Síðan um kveldið er matur heima hjá Ágústu og ætli það verði ekki drukkið eitthvað smáræði líka?! Ætli við horfum ekki á flugeldasýninguna heima hjá henni...held að hún sé með þetta líka svaka fína útsýni :) Svo er stefnan tekin Down Town Reykjavík og ég veit að ég ætla ekki að láta mig vanta á Prikið þar sem meistarar Dr.Mister & Mr. Handsome verða með eitthvað spilerí...ætli Ellefan taki svo ekki við eftir það?:)

Leitin mikla að draumaprinsinum heldur enn áfram...súkkulaði dugir ekki lengi sem einhver staðgengill...sest bara á rassinn og mjaðmirnar og neitar að fara!! Kannski ég eigi bara að enda ein...verða "skrítna" frænkan sem öllum finnst alveg gúgú og á alveg trilljón ketti og fullt af súkkulaði?! Maður á kannski ekkert að vera allt of vongóður þessa dagana...uppfull af kvefi og ógeði...flensudrusla...getur hún eki ásótt einhvern annan? Ég veit allavega að ég er komin með nóg af því að liggja upp í sófa og horfa á sápur sem endast verr en allt...þó svo að Dylan McKay sé helvíti hot!

 

Jæja, þá er reglubundna vælinu mínu lokið...hafið það gott og sjáumst hress og kát og flensufrí á laugardaginn:D

 

p.s.

Svona smá lokapæling....og endilega komiði með einhver komment á þetta...er Paris Hilton hot? Er hún ekki lýsandi fyrir allt það kjánalega sem til er? Er heillandi að vera ljóshært bimbó sem lítur ekki út fyrir að vera með mikið á milli augnanna? Er kúl að vera fræg bara fyrir að vera fræg? Er kúl að skipta um kærasta eins og nærbuxur? Eða það sem er enn verra, er kúl að skipta um vini eins og nærbuxur? Er í lagi að fá að gefa út smáskífu sem hljómar verr en allt? Ég meina come on! Þetta lag er drepleiðinlegt og hún syngur ekki heldur stynur hún og emjar og vídjóið er hrikalega hallærislegt!! Er fólk virkilega svona einfalt að "fíla" þetta bara af því að þetta er lag með Paris Hilton??? Þau fáu skipti sem ég hlusta á FM þá finnst mér ég alltaf heyra þetta lag!! Ojj!!! Kannski er ég bara svona hrikalega abbó eða eitthvað en ég meina það! Nennir fólk plís ekki að vera vitleysingar og ekki hlusta á þetta lag! Hehe svona smá aukapæling....ætli það sé til sérstakur óbeinn rúnkbissness? Þá er hún örugglega að einblína inn á þann markað!!!

 

Takk fyrir og Góða nótt....B


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 02:02:39 / bitta

...

Jæja langt síðan að ég bloggaði eitthvað af viti...smá upptalning á lífi mínu síðustu vikuna....

  • Æðislegur dagur á Austurvelli með fullt af æðislegu fólki.
  • Hætti í vinnunni minni.
  • Fékk M&M peanut butter frá Tómasi ;)
  • Fór2x í bíó..Johnny Depp stendur fyrir sínu..grrrrrr;) Chris Klein er aftur á móti glataður...
  • Innipúkinn með Bjössa...vávávává og aftur vá! Ég fer ADLREI aftur í útilegu um Verslunarmannahelgi!!!
  • Mikið drukkið af kaffi.
  • Ofspilaði Dirty Slutty Hooker Money.
  • Bláa Lónið í boði Tinnu.
  • Og svo það besta af öllu....fór loksins á ellefuna eftir laaaaaaangt frí!! Djöfull var gaman:D:D:D::D

En já..mín bara orðin despereit á draumaprinsinn...hehe það var búið að spá fyrir mér að ég myndi hitta draumaprinsinn um verslunarmannahelgina....en nei ég umgekkst homma, talaði við homma via sms ( náði að redda mér gjafasæði ef að ég verð enn einhleyp og barnlaus um þrítugt...lítur allt út fyrir það! ) uhh...slefaði yfir söngvaranum í Jeff Who? veit ekki einu sinni hvað gaurinn heitir en guð minn góður hvað hann er HOT!!! Og með sítt hár :) Fékk sígarettu hjá sætum gaur með sítt hár ooooog mottu...hottí...fékk knús frá ljótum sköllóttum gaur af því ég redaði honum eld og svo var annar gaur sem að sagði að ég væri með flott hár..hmmmm??Rakst svo á einn alveg hrikalega myndarlegan...þá fóru ónefndar tilfinnigar að gera vart við sig...lét mig bara hverfa eftir það..var alveg búin að sjá mig fyrir mér fara í kál og klessu við að sjá hann og viti menn?! Hvað gerist? Jú..Birgitta verður asnaleg..og breytist í kálböggul...leið allavega þannig....!!! Hvað er að mér??!!! Sá eða Sú sem getur sagt mér það má fá M&M hjá mér...believe me...það fær sko ekki hver sem er!!!

Þar sem að ég er orðin atvinnulaus aumingi ætla ég að hanga heima hjá mér þar sem að allt annað kostar peninga...

Og á döfinni...götuleikhús á Fjölskyldudeginum í Vogunum, ljóðakvöld, menningarnótt, skólinn, ljósanótt...FINNA VINNU!!!!!!

Svo er ég versta vinkona sem til er í öllum heiminum...gleymdi afmælinu hans Þormars áðan...hann var fúll. FYRIRGEFÐU FYRIRGEFÐU FYRIRGEFÐU!!!!!!! Elska þig dúllísnúllí;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 03:39:08 / bitta

Wow! Takk fyrir mig SgurRós!

Ég get svo svarið það...þetta voru einhverjir albestu tónleikar sem ég hef nokkurn tímann á ævi minni farið á (kannski ekki svo löng ævi eða rosalegt magn af tónleikum...)...úff, samt sem áður svakalegir tónleikar ! Ef að þetta band lætur ekki þjóðarstoltið renna um æðar íslendinga núna þá er eitthvað mikið að hjá fólki.

Ætlaði líka að fá mér tattoo í dag...Fjölnir tattoo beilaði á tímanum mínum ( og ekki í fyrsta skipti ) þannig að ég er ekkert svo viss um að ég láti hann um að setja það á mig...er heldur ekkert alltof örugg með hann, hef séð svo mikið af misheppnuðum flúrum eftir hann og hver veit, kannski verður mitt næsta misheppnaða? Hugsa að ég tali bara við Sigga tattoo á morgun og tékki hvort að hann sé ekki til í að setja á mig, hann er pottþétt ódýrari líka.

Fékk íspening frá pabba áðan, skemmtilegt það, takk pabbi ;)

Svo á morgun þá er fyrirhuguð götuleikhúsæfing, ég og Alex ætlum líka að kíkja á búninga og fara að kíkja á málningu og svona..það allt saman þykir mér alveg ægilega spennandi, hlakka mikið til þegar atriðin okkar verða fullkláruð og við sýnum þau.

Ég og Eydís rákumst svo á Bríet Sunnu í kveld, alltaf gaman að hitta hana:) Líklegast brosmildasta manneskja sem að ég þekki! Alltaf svo glöð þessi dúlla.

Svo nenni ég ekki að skrifa mikið meira, hef sterkan grun um að einhver hafi misst tölvuna mína í gólfið eða eitthvað því hún er skuggalega slow núna...kannski hún sé bara að fara að hrynja??? Það myndi fullkoma mína aumkunarverðu tilveru!

Komst líka að því áðan að stelpur eru víst ægilega mömmulegar þegar þær eru einar með strákum sem þær eru að deita...og yfirleitt mjög kjánalegar þegar þær eru í kringum strákinn og vinkonur sínar...þetta fékk ég að heyra frá vini mínum áðan og ég get svo svarið það...ég held barasta að það sé mikið til í þessu hjá honum!

Eeeen allavega, ég kveð í bili...og ég skal lofa ykkur því að fyrst að ég er búin að setja upp svona ágætis skedjúal fyrir morgundaginn þá muni ég kannski standa við einn hlut af listanum mínum! Það er eitthvað svo dæmigert fyrir mig!

Bless, Bless!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 03:51:09 / bitta

SigurRós

SigurRósar tónleikar á Klambratúni á sunnudag :) Matur heima hjá mér fyrst...áhugasamir bjalla í mig ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 02:11:11 / bitta

Eitt stykki blogg takk :)

Jæja...mikið er ég orðin léleg í þessu...ekki nógu gott. Annars hef ég alveg ægilega lítið að segja þessa dagana, geri mjög lítð nema vinna, hanga heima og hitta hitt og þetta fólk þess á milli og gera svo að segja ekkert með þeim!

Ég er farin að hlakka rosalega mikið til að fara að byrja í skólanum, ekkert skemmtilegasti skóli í heimi en mjög góður samt og besti árangur sem ég hef náð í skóla yfirleitt var í FG þannig að það er bara spurning hvort mér gangi ekki vel núna? :)

Verslunarmannahelgin nálgast óðfluga...ég ætla að vera heima og grilla og kíkja á Innipúkann og hafa það kózý bara...hlakka líka mikið til, vona að þetta verði frekar afslappað, nenni ekki einhverju hörkudjammi...er orðin gömul bara, var einmitt að ræða það við Tinnu í gærkvöldi, já við ætluðum rétt að hittast í tíu mínútur...endaði á 4 klst rúnti og blaðri a´la Birgitta og Tinna!

Fékk nýjan bíl í kvöld, Vala er algjört yndi, er að selja mér sinn bíl og redda mér þvílíkt!! Alveg frá því áður en ég fór út þá eru bílamálin mín búin að vera algjört HELL!!! Vonandi ( *sjö-níu-þrettán*) reddast þetta núna og verður eitthvað stabílt...nenni þessu ekki lengur!

Svo langar mig svooooooo að fara á SigurRósar tónleikana á Miklatúni á sunnudaginn...er bara að vinna og veit ekki hvort ég fái að skipta eitthvað. Hef aldrei séð SigurRós live..hef svo að segja hlustað afar takmarkað á þá en ég hugsa að þessir tónleikar verði mjög góðir uppá stemmingu að gera..?;)

Well...farin að lúðast eitthvað hræðilega og svo farin í háttinn..bæbæ:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 12:45:33 / bitta

Vel heppnað Doors djamm;)

Jújú, á föstudagskvöldinu síðasta var efnt til Doors hittings hjá Alexöndru. Við byrjuðum kvöldið rólega með því að grilla, með Doors á fóninum að sjálfsögðu! Grilluðum þessa líku feitu hamborgara og humar með...namminamm!! Svo eftir matinn var myndinni skellt í og ég og Kristín Rúnars hlömmuðum okkur í sófann...entumst ekki lengi þar sem að restin af hópnum var kominn í "ég hef aldrei"...það entist heldur ekki nema einn hring! Svo fórum við í eitthvað annað spil sem var heldur ekki að gera sig þannig að við færðum okkur út á pall, reyndar bara til þess að fá okkur sígó en við festumst þar í örugglega þrjá-fjóra tíma! Enda var rafmagnsgítarinn og magnarinn kominn út á pall og hörkufjör bara. Einhverntímann um kvöldið var svo stefnan tekin niður í bæ og á Paddy´s þar sem að var hörkufjör..hitti Mugison:D:D Algjör auli...óð náttúrulega að honum og bað um eiginhandaráritun...sem og ég fékk!;) Svo hitti ég líka Bjössa og var að spjalla helling við hann...og ætli hápunktur kvöldsins hafi ekki verið þegar Eydís kom til mín og bað um vopnahlé?:) Jújú...við komumst að því að við erum báðar alveg þrjóskar með eindæmum og eigum alveg ágætlega saman..þannig að öllu var ýtt til hliðar og bara fresh start hjá okkur fíflunum. Síðan var Paddy´s lokað og það fóru einhverjir yfir á Hápunktinn, ég þar á meðal..týndi reyndar öllum og endaði með því að hringja í Eydísi og hitti hana hjá 10-11 og við redduðum okkur saman heim.

Allt fallega fólkið sem átti þátt í að gera þetta kvöld frábært eru eftirtaldir ( mun líklegast gleyma einhverjum) : Alexandra, Steinunn, Ragga, Kriztín, Zonia, Gunna Lísa, Ágústa, Kristín Rúnars, Kristín Harðar, Móa, Bjössi, Eydís, Óli Paddy´s var þarna líka...uhh...fokk ég er að gleyma helling! En þetta gefur þó einhverja hugmynd um kveldið...howdy:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 03:03:45 / bitta

kraftaverk!!!

Jújú, mikið rétt, ég upplifði kraftaverk í dag...fékk að fara klukkutíma fyrr heim úr vinnunni...en það sem ég gerði í dag var það að vakna ógeðslega seint og mamma var hundfúl út í mig að sofa svona lengi...til að verða tvö..þannig að ég fór í föt og svo beint í vinnuna...þurfti að fá gestapassa því Sara var víst að leika sér með passann minn í gær og viti menn...passinn týndur, hver hefði getað séð það fyrir?! Svo var bara ógeðslega viðbjóðslega mikið að gera í dag, 16 transit vélar og svo uppgjörsvél klukkan sjö og cargo klukkan hálfátta...ég og Kalli vorum bara tvö þegar sjö vélin kom þannig að við fengum mjööög stuttan matartíma. Svo voru ekki nema 9 vélar í uppgjörinu í kvöld, við kláruðum þrjár vélar með átta fólkinu þannig að það voru bara sex vélar með stubbunum sem þýddi að við gátum farið fyrr heim...eins og kannski hefur hvarflað að ykkur á meðan á þessum lestri stóð...þá já! Birgitta er í ógeðslega leiðinlegri vinnu! En sem betur fer á ég afskaplega lítið eftir..einungis 12 heilar vaktir, tvær stubbavaktir plús 4 klukkutíma og svo líklega einhverjar aðrar skiptivaktir sem eru 3 eða 4..og þá get ég sagt bless IGS...og fæ frímiða....sweet:D Get ekki beðið.

Svo á morgun eru víst plönuð eitthver mótmæli...veit samt ekki alveg hvernig það verður, búið er að tilkynna það að ef eitthvað verði af þessu þá munu allir starfsmenn IGS fá sent uppsagnarbréf í lok mánaðarins, IGS verður lagt af og vinnan boðin út...held að það verði einhvern veginn svoleiðis miðað við það litla sem ég heyrði í vinnunni í dag.

En ég er orðin dauðþreytt og býð bara góða nótt :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 02:47:43 / bitta

Bryndís vs. Birgitta

Eins og þegar ég upplifi síðustu samverstundirnar hjá mér og Bryndísi áður en hún fer aftur til Svíþjóðar...

Það er svo ótrúlegt og við ræddum þetta mikið fyrr í kvöld, hvað við erum rosalega ólíkar en samt svo líkar! Við höfum þekkst frá fæðingu þannig að við þekkjum hvor aðra rosalega vel. Höfum alltaf verið nánar, nema eitt ár og það var þegar ég gekk í gegnum hrikalegu áttunda bekkjar gelgjuna..þegar við vorum litlar og gistum saman,sem var svo að segja alltaf þegar hún var á Íslandi, þá rifumst við um það hvor okkar ætti að sofa með litlu hafmeyju svefnpokann hennar!! Auðvitað fannst mér að ég ætti að fá að vera með hann þar sem að ég var nú einu sinni hennar gestur...við fórum í kitluslag á hverju kvöldi áður en við fórum að sofa...sem endaði yfirleitt með kapphlaupi á klósettið! Við elskuðum Aqua og þá sérstaklega Barbie lagið, fórum í pleimó heima hjá ömmu hennar, fórum í pottinn hjá ömmu hennar, lékum okkur í kofanum hjá ömmu hennar ( amma hennar býr í ævintýrahúsi fyrir litla krakka).

Svo vorum við líka alltaf eins og svart og hvítt, hún mjó ég feit, hún ljóshærð ég dökkhærð, hún tepra ég trukkur! Svona get ég haldið endalaust áfram...Og í dag erum við ennþá mjööög ólíkar! Útlitslega séð hefur lítið breyst! Ég klæði mig subbulega eða búllulega eins og Tómas myndi orða það, hún klæðir sig hnakkalega..henni finnst æðislegt að vera kvenleg, ég nenni yfirleitt ekki einu sinni að standa í því..hún elskar háhælaða skó, ég elska strigaskó...hún er frekar klassísk ég er meira spontant..hún dansar hrikalega vel ég dansa ekki vel! Hún hlustar á tónlist djöfulsins (r´n´b,hip hop) og ég hlusta á rokk...eigum samt mikið af sameiginlegum uppáhaldstónlistarmönnum og böndum ( hún er ekki alveg vonlaus...)

Bryndís er samviskusöm, ég er kærulaus, hún hefur metnað, ég tja..reyni að komast upp með að gera eins lítið og ég mögulega get til þess að ná! Hún er praktísk, ég er eyðslukló..hún öskrar í bíó, ég hlæ!

Þrátt fyrir það að við séum ógeðslega ólíkar þá smellum við saman eins og púsluspil!

Bless og takk fyrir mig...

p.s

Tómas sagði aftur í dag að hann vilji taka mig í make-over....


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 04:54:03 / bitta

grenj grenj

sjitt...klukkan er að ganga fimm a þriðjudagsmorgni og ég sit við tölvuna mína og grenja af því að ég er að gera mér grein fyrir því að tómas er að fara í burtu, í aðra heimsálfu í næstum ár og ég mun ekki geta hringt í hann hvenær sem er, þegar mér líður illa og vantar að fá bara að heyra aðeins í honum eða þarf knús...æji...djöfuls sjálfselska í mér, auðvitað er ég glöð fyrir hans hönd að fara og upplifa nýja hluti og frábæra reynslu..en samt...ég er að hágrenja! ég er fífl. það má með sanni segja að enginn hefur átt fyrr en misst hefur..fokk veit ekki einu sinni afhverju ég er að velta mér uppúr þessu...hann er allt of mikið æði, þeir sem þekkja hann vita hvað ég meina..ohhh ég sakna þín strax þarna þú...

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:28:26 / bitta

Matisyahu = my new best friend ;)

Úff...hrikalega er þetta magnaður tónlistarmaður, þetta er víst gyðingur frá new york, hann spilar reaggie,hip hop, rokk blöndu einhverja og það líka svínvirkar svona! Svo eru textarnir hans ýkt fallegir...mæli eindregið með því að fólk kynni sér þetta betur...mann langar helst bara að fara og knúsa hann þegar maður er að hlusta á hann!!

En að allt öðru...Linda átti afmæli í gær, fékk bílbróf og svona...til hamingju með það sæta:D Ég útbjó þessa líka hrikalegu flottu gjöf miðað við fjárráð (!) prentaði út fullt af gömlum, fyndnum myndum af okkur og límdi á blað ( með tyggjói því ég fann ekkert lím! )...skrifaði smá kveðju líka...smá forréttur bara, aðalrétturinn kemur eftir mánaðarmót!
Svo rúntuðum við aðeins, eiginlega svolítið mikið og töluðum saman heilan helling..veltum fyrir okkur hvar draumaprinsarnir okkar eru staddir? En ég held að stóra spurningin sé samt..hvar eru góðu strákarnir? Þessir sem eru bara trúir sjálfum sér og þurfa ekki endalaust að vera að lúga að manni, ég þekki þrjá svoleðis..bróðir minn, Tómas og Þormar. Bróðir minn er sjálfkrafa ekki kostur, Tómas eki heldur þar sem að hann á kærasta og Þormar gæti allt eins verið bróðir minn! Æ þeir eru allir svo frábærir! Ef ég væri hommi þá myndi ég reyna við Tómas, ef ég væri 13 ára  og ekki skyld sjálfri mér myndi ég reyna við bróðir minn ( hljómar ógeðslega ég veit, en ekkii taka því þannig!) og ef að ég myndi ekki þekkja Þormar jafn vel og ég geri myndi ég líklegast reyna við hann!! Get ég ekki bara fengið mér mixara og mixað þá saman í einn gaur?!! Myndi sletta smá Johnny Depp, Viggo Mortensen og Jim Morrisson með...En já þetta eru góðu strákarnir sem allir elska og ég er svo blessunarlega heppin að þekkja þá alla :D Þetta er komið út í eitthvert algjört bull...en svona er ég...með hausinn allstaðar og hvergi! Bíð spennt eftir verslunarmannahelginni....búið að spá fyrir mér að ég hitti ástina mína þá!!! En já, verslunarmannahelgin...Innipúkinn er málið þetta árið, hugsa sér, ég sem fæ fiðring í magann alltaf um að fara í útilegu þessa helgi hef engan áhuga á að keyra eitthvert út á land, detta í það, verða vitni að slagsmálum og leiðindum, heyra hrikalegar sögur um þennan og hinn...neibb...þá segi ég bara að rock n´roll heillar meira núna...og ég kemst heim að sofa:) Lovely!
Jæja þetta er víst orðið ágætt í bili....blogga alltaf svo langar og leiðinlegar færslur að það les þetta enginn....allavega kommentar enginn!

Fer líklegast til Ameríku í september....og svo er ég á leiðinni á Nick Cave:D:D:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leitarbox